Hvernig fjarlægi ég Picasa 2?

Þú getur fjarlægt Picasa úr annað hvort Bæta við eða fjarlægja forrit stjórnborðinu eða með því að nota Fjarlægja valkostinn úr Picasa forritahópnum ("Ræsa" > "Forrit" > "Picasa2" > "Fjarlægja").

Á meðan forritið er fjarlægja verður þú spurð(ur) hvort þú viljir fjarlægja Picasa gagnagrunninn líka. Veldu "Já" ef þú vilt eyða út skipulagi eða breytingum sem þú gerðir í Picasa (ef þú ætlar ekki að setja Picasa 2 upp aftur). Smelltu á "Nei" ef þú vilt geyma þær breytingar sem þú hefur gert (ef þú ætlar að setja Picasa 2 inn aftur).

Eftir að þú fjarlægir Picasa gætu skrár eða möppur orðið eftir í Picasa uppsetningunni. Þú getur fjarlægt Picasa möppuna með því að gera eftirfarandi:

1. Opna "Tölva notanda" > C: drif > 'Program Files.'
2. Hægrismellt á Picasa möppuna.
3. Smellt á "Eyða."
4. Smellt á "Já."

Picasa verður þá algjörlegt horfið úr tölvunni þinni.